Ameríski ökumaðurinn Scott Speed mun aka þriðja bíl Red Bull í Kanada og á Indianapolis brautinni í Bandaríkjunum. Speed vonast eftir að komast um borð í Formúlu 1 bíl og það er markmið Red Bull að koma honum að á næstu árum. Speed ók á Silverstone í dag og mun aka á föstudaginn í Montreal.

,,Þetta frábært tækifæri. Það verður sérlega gaman að aka á heimavelli á Indianapolis. Ég hef hvorki ekið á Montreal brautinni né Indy og þetta verður spennandi og krefjandi verkefni”, sagði Speed í dag þegar tilkynnt var um málið.

http://www.formula1.is/