David Coulthard segir að bilun í sjálfvirka ræsibúnaðinum í McLaren-bílnum hafi valdið því að drepist hafi á vélinni er hann hugðist aka af stað í upphitunnarhringinn.

Coulthart sem varð þess vegna að ræsa aftast segir þessa bilun líklega hafa kostað sig sigurinn því bílinn hafi að öðru leiti verið hárétt uppsettur fyrir aðstæðurnar í Mónakó-kappakstrinum. “Þessi bilun í ræsibúnaðinum er mér óskiljanleg því við höfum margoft farið yfir þetta á æfingum undanfarið” sagði Coulthard.