Ég legg til að hann verði látinn starta aftastur það sem eftir er af keppnistímabilinu. Maðurinn er stórhættulegur, í þeim þremur keppnum sem eru búnar hefur hann ollið 3 árekstrum snemma í keppninni. Það er eins og hann hafi bara ekki taugar í þetta. Fyrstu 2 atvikin voru fyrirgefanleg vegna þess að bílar “fórnarlambana” skemmdust ekkert að ráði við áreksturinn en þegar hann keyrði aftan á Ralf Schumacher í dag var mér nóg boðið. Hann á ekki heima meðal þeirra bestu, allavega ekki í startinu!