Ferrari er búið að vera í formúlu eitt frá því að hún var stofnuð árið 1950, McLaren er búið að vera í formúlu eitt frá 1966 og Williams er búið að vera í Formúlunni síðan 1976. Öll hin liðin eru búin að vera innan við 20 ár. Minardi var stofnað 1985, Jordan síðan 1991, Sauber síðan 1993 og Renault með löngu hléi síðan 1978 eða eitthvað. Jaguar síðan 2000 og Toyota síðan 2002. BAR er búið að vera síðan 1999. Svo að þú sérð að elstu liðin eru að ná besta árangrinum. En Minardi er það eina sem sker sig úr Því það er með eldri liðum en nær engum árangri. Besti árangur Minardi er fjórða sætið með Pierluigi Martini undir stýri árið 1991 í Portúgal og San Marino.