Ég veit ekki hvað ykkur finnst en persónulega finnst mér alveg hundleiðinlegt að Schumacher sé að vinna allt. Það var nákvæmlega engin spenna í formúlunni á síðasta ári og mér fannst Sjúmmi leiðinlegri en nokkru sinni fyrr. Hann er eitthvað svo viss um að hann mundi vinna. Kannski er þetta bara öfundsýki því ég held með McLaren( hvernig sem það er nú skrifað ) og er því erkióvinur Ferrari. Mér finnst að Sjúmmi ætti bara að fara að hætta þessu, hann tekur alla skemmtun úr formúlunni og gerir það að verkum að vinsældirnar eru ekki eins miklar. Hvað finnst ykkur?