Visir.is

Samkvæmt fréttum í dagblöðum í Argentínu á Gastón Mazzacane að vera öruggur með sæti hjá Prost liðinu. Jafnvel var búist við að þetta yrði tilkynnt í dag en Alain Prost sagði aðeins þegar styrktarsamningur PSN var undirritaður að ökumannsskipan yrði ljós upp úr áramótum.