BMW Williams liðið tilkynnti í dag að Marc Gené muni keyra sem þeirra aðaltilraunaökumaður á næsta tímabili. Gené er búinn að skrifa undir eins árs samning við liðið. Ef Ralf Schumacher eða Juan Pablo Montoya eru ekki til taks í einhverja keppnina 2001 mun Gené keyra fyrir þann hinn sama. Gené er mjög ánægður með þessa nýju stöðu sína. Hann byrjar æfingar 5 desember.