Ég vildi bara láta fólk svona vita af því að þetta lénnafn mun verða upptekið á næstunni og er það ég og vinur minn sem stefnum að því að taka það. Við höfum verið í póstsendingum við liðsmenn Ferrari á Ítalíu þar á meðal Jean Todt. Við höfum sótt eftir aðgangi og skráningu sem “official fan club” hjá Ferrari.
Hafnar eru viðræður við styrktaraðila og munum við koma þessu upp áður en næsta keppnistímabil hefst.
Munum við bjóða upp á ýmislegt, þar á meðal.
Vefsíðu.
Fréttabréf (email og venjulegan)
Við höfum líka verið að íhuga að taka upp póstföng sem félagsmenn fengu aðgang að eða nafn@fanclubferrari.is.
Spennandi verkefni sem ég vona að fólk hafi áhuga á.
Félagsgjaldið verður u.þ.b. 1500kr og þá fást afslættir hjá ýmsum aðilum og kannski eitthvað meira ef vel gengur.
Þetta verður einungis sjálfboðavinna hjá mér og vini mínum en enginn veit svo hvað kemur í kjölfarið.
Ég mun láta ykkur vita meira um leið og það gerist.
EVE-Online: Minuz1-Shinra