Ég er örugglega sá eini á Íslandi sem held með Jean Alesi.
Ég þori að halda með manni sem er ekki bestur eða í besta liðinum. Jean Alesi er elsti ökumaðurinn í F-1 þetta árið og hann ekur fyrir Prost liðið. Undanfarin 2 ár ók hann fyrir Sauber liðið en Sauber bíllin er flottasti bíllinn. Eftir tímatökur í dag er Alesi í 18. sæti og eru þetta mikil vonbrigði fyrir mig því hann er á heimavelli. En hann mun örugglega taka fram úr 3-4 í startinu og ef hann keyrir ekki út af á hann möguleika á stigum.
Jean Alesi er með flesta framúrakstra í F-1. Ef hann væri á betri bíl myndi hann vera í toppbaráttunni
Gleymum ekki smáfuglunum..