Í íþróttum á sá andi að gilda að gera sitt allra besta og geta sætt sig við að aðrir geti gert betur. Í ár hefur það gerst að við McLarenaðdáendur verðum að játa okkur sigraða. Schumacher vann fyrir kaupinu sínu og gerði það vel. En þetta keppnistímabil hefur verið alveg sérstaklega spennandi, og þegar upp er staðið er það keppnin á brautinni sem skilur menn að, ekki önnur leiðindi.
Og Ferrariaðdáendur, til hamingju, titillinn er ykkar, verðskuldað.