Hérna í Þýskalandi er allt rautt, allir helstu fréttamiðlar flytja fréttir af nýjasta heimsmeistaranum, hann er hetja dagsins…
Maður sér bíla á götum úti með Ferrari fána eða fána með M.Schumacher.
Það var mjög gaman að fylgjast með útsendingu á stöð sem heitir Premiere, en þeir voru til að mynda þeir einu sem fengu að fylgjast með því hvað gerðist þar sem bílstjórarnir eru viktaðir. Hvað þeim fór á milli o.s.frv. Þá spiluðu þeir upptöku af því er M. Schumacher sagði í talstöðina þegar hann fór sigurhringinn eftir keppnina, það var ótrúlegt að heyra til hans.
Hann sýndi líka í einu viðtalinu lukkugrip er dóttir hans lét hann hafa fyrir keppnina í USA og sagðst halda að það hefði hjálpað til…
Hver veit, allavegana til hamingju allir Ferrari og/eða M. Schumacher aðdáendur - það hlaut að koma að þessu.