Já þetta hefur eitthvað verið í deiglunni hér á áhugamálinu og hef látið skarar skríða. Eftir 3 ár í þessum snilldar leik þá ætla ég að reyna breiða þessu út eins og kristin trú var breidd af hinum mikla Jesú. En það er önnur saga.

Ég ætla mér að útskýra þennan leik í stuttu máli og svo þarf bara að pósta upplýsingum um þitt notendanafn og þú færð invite í þessa snilldar sveit eða deild.

Þetta er leikur sem þú kaupir þér bíl, vél, tvo ökumenn og hjálma en það síðastnefnda er einmitt nýtt í þessum leik. Þú færð ákveðið fjármagn til kaups og sölu, þannig getur þú gert liðið þitt UBER! Þú færð lítinn pening í byrjun en ef þitt lið stendur sig vel þá færðu x mikinn pening og x mörg stig.

Það þarf mikið að spá í þessum leik og vera með allt á hreinu milli keppna. Þessi leikur boðar upp á allt sem leikir þurfa að bjóða uppá.

Það kostar 10 stóra gullpeninga í þennan leik og er hægt að borga með kreditkorti eða með millifærslu úr einkabanka. Það kostar hinsvegar 0 krónur í deildina góðu og eins og ég sagði þá þurfið þið bara segja mér liðsnafn og ég bæti ykkur inn. Þar verður frítt spjall þar sem er hægt að ræða offtopic ásamt topic umræðum um allt milli himins og jarðar.

Svo eru hugarar ekki tilbúnir að henda 10 gullpeningum í þessa veislu?