Spáleikurinn 2007 Ég ætla að gera svo aggresívur að tilkynna ykkur það að spáleikurinn 2007 á vegum stjórnenda formula1 áhugamálsins á huga er kominn á skrið aftur.

Við stjórnendur ætlum að herja á bílaumboð næstu daga/vikur og athuga hvort einhverjir vilji mögulega sponsera okkur með vinningum.

Ef hart fer þetta árið þá spilum við leikinn upp á ánægjuna.


Spáleikurinn í fyrra gekk að óskum og vonum við stjórnendur að svo verði einnig í ár. Reglurnar eru þær sömu og í fyrra og ef þið viljið rifja þær upp kemur kubbur með þeim inn á áhugamálið á næstu dögum.

Nú er bara fyrir þig notandi góður að leggja höfuðið í bleyti fram að föstudag fyrir keppnishelgi. Lokað er fyrir spánna á miðnætti fyrir keppnishelgi. Ef svo ómögulega vill til að enginn stjórnandi er til að læsa greinunum sem veðmálin fara fram og spá birtist eftir miðnætti mun hún vera þurkuð út og gilda sama og engin stig. Verið því tímanlega í því.


Fyrir hönd stjórnenda formula 1 áhugamálsins:


Aiwa
FusionLorus
Snilli23