Nú hefur verið ákveðið að hrinda af stað greinasamkeppni hér á Formúluáhugamálinu.

Keppnin virkar þannig að þeir sem vilja taka þátt senda inn grein um eitthvað sem tengist Formúlu 1 fyrir þriðjudaginn 4. júlí. Þá munu greinarnar síðan verða samþykktar og gerð könnun á bestu greininni.

Reglurnar:
1. Greinin þarf að vera þitt verk, getið heimilda ef hægt er.

2. Skilafrestur er 4. júlí.


Með þessu vonumst við til þess að áhugamálið muni eflast og hækki upp um sæti á listanum yfir mest sóttu áhugamálin.

Engin verðlaun verða veitt fyrir þessa greinasamkeppni önnur en heiðurinn af því að eiga bestu greinina.

Kv.
Pardox
- Á huga frá 6. október 2000