Benetton á höttunum eftir Schumacher? Ótrúlegar sögusagnir hafa verið á kreiki um að Michael Schumacher sé á förum til Benetton keppnisliðsins. Ástæða þessa er að Willi Weber umboðsmaður Michael Schumachers hitti Flavio Briatore keppnisstjóra Benetton liðsins fyrir skömmu. Willi Weber sagði að hann hafði hitt Flavio Briatore fyrir tilviljun og aðeins rætt við Flavio Briatore um Ralf Schumacher bróður Michael Schumachers.
Willi Weber segir að Michael Schumacher sé staðráðinn í að vinna heimsmeistaratitilinn með Ferrari liðinu í ár og vonast til að geta endurtekið leikinn á næsta ári. Willi segir að þeir einbeiti sér að þessu verkefni, en segist jafnframt skilja að allir keppnisstjórar vilji hafa besta ökumann heims í sínu liði. “Viðræðurnar snérust hins vegar ekki um Michael.”
Michael Schumacher og kona hans Corinna hafa verið á ferðalagi um Bandaríkin að undanförnu. Ekki er vitað hvar þau hafa verið, en vitað var að þau ætluðu að ferðast að hætti Peter Fonda í “Easy Rider” þ.e. á Harley Davidson mótorhjóli. Willi Weber sagðist hafa talað við Michael í síma og sagði að hann og kona hans hefðu haft mikla ánægju af ferðalaginu en hlakki til að mæta til Montreal enda sagði Michael Schumacher: “Kanada er í miklu uppáhaldi hjá okkur, mjög fallegt land og vinalegt fólk.”