Nú fer senn að líða að nýju formúlu 1 keppnisári og þá er ekki úr vegi að velta fyrir sér hvernig þessu áhugamáli verður háttað meðan að hápunktur formúlunnar er í gangi.
Nú hef ég verið að spá í því að koma með sniðugar endurbætur á áhugamálið svo sem, stuðningsmaður vikunnar, stöðuna í keppninni og eitthvað fleira en hvað getur það verið?
Ég vil varpa boltanum til ykkar sem stundið áhugamálið og sjá hvað þið viljið sjá og láta koma fram nýtt eða bætt á árinu!

Svo má alls ekki gleyma greinunum, gaman væri að fá fleiri greinar hingað inn annars er ég mjög sáttur við tölurnar sem komu úr desember mánuði og mér finnst eins og áhugamálið sé aðeins að vakna til lífsins sem er náttúrlega frábært.

En nú varpa ég þessu til ykkar, hvað viljið þið sjá???

Kv.
FusionLorus