Jæja þá er Schumacher búinn að stimpla sig inn sem vælukjóa. Allir gerðu grín að Hakkinen þegar hann fór út í skóg að væla. Hann reyndi þó alla vega að forðast fréttamennina en Schumacher ákvað að vera ekki að fela það og grenja á fréttamannafundinum. En Hakkinen reyndi að hughreysta hann. Allir vita að Hakkinen er tilfinninganæmur en er Schumacher, sá sem allir segja að sé svo harður, eitthvað að linast. Er það gott eða vont?