Í framhaldi af því að Peugeot ætlar að draga sig út úr formúlunni á næsta ári er líklegt að Prost liðið fái Mugen Hondu vélar í bíla sína þess í stað. Mugen, sem vinnur náið með Honda, sér Jordan liðinu fyrir vélum en það lið fær að öllum líkindum fullan vélarsamning við Honda á næsta ári, ásamt BAR, og því losnar um sæti fyrir Mugen vélarnar sem líklegt er að Prost taki. Prost notaði Mugen vélar árið 1997 og það er kaldhæðnislegt að liðið náði fleiri stigum á því eina ári með Mugen en síðustu tveimur með Peugeot. Akain Prost á þegar að hafa rætt vélarsamning við eiganda Mugen, Hirotoshi Honda.
Oli :)