Síðustu daga hefur verið talað um það í fréttum að Ralf Schumacher sé á leiðinni til Maclaren. Ástæðan á að vera sú að Frank Williams vilji ekki borga nógu há laun, en hann hefur ávalt forðast að yfir-borga ökumönnum sínum. Allt frá því ég las þessa frétt hef ég ekki trúað öðru en að hún sé uppblásin.
Sá grunur hefur nú verið staðfestur í Þýska fréttablaðinu DPA, en þeir höfðu samband við yfirmann Mercedes, Norber Haug og spurðu hann útí áhuga þeirra á Ralf. Hann svaraði því “there is nothing at all to it”.
Ég er persónulega mjög ánægður með það og vona að þetta standist. Meira gaman væri að fá Hakkinen aftur í gang fyrir næsta tímabil og sjá þá hann og bræðurna berjst um titilinn.