Rubens Baricehllo sagði í viðtali að honum fyndist Montreal vera skemmtileg braut oa að keyra hana væri eins og að fara í ferð í rússíbana. Honum hefur gengið vel á Montreal í fyrri keppnum hann varð í öðru sæti í fyrra á eftir Schumacer og þar á undan var hann einnig í öðru sæti fyrir Jordan liðið og því vonast hann eftir góðum árangri um helgina.