Þá er Austurríkiskappaksturinn afstaðinn og stóð David Coulthard uppi sem sigurvegari. Annar varð Michael Schumacher og félagi hans, Barichello varð þriðji. Barichello vék fyrir Schumacher þegar nokkrir metrar voru í mark, en stjóri Ferrari skipaði svo fyrir. Á blaðamannafundinum eftir keppnina sást það greinilega að hann var hreint ekki sáttur með það, en sagðist samt hafa verið “ánægður” með það. Félagi Coulthard, Mika Häkkinen sat eftir í rásmarki þegar keppnin hófst og var hann gráti nærst, enda hefur ekkert gegnið upp hjá kappanum þetta tímabilið. Michael Schumacher leiðir keppni ökumanna með fjögurra stiga forskot á David Coulthard, sem er í öðru sæti.