Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnumaður í golfi, lék í dag á tveimur höggum undir pari á móti í bresku mótaröðinni sem fram fer í Dublin. Þetta var annar hringurinn en í gær lék hann á tveimur yfir pari í erfiðum aðstæðum en mjög hvasst var meðan leikið var.
Birgir Leifur er því á pari og var hann í öðru sæti af þeim sem lokið höfðu keppni í dag en um helmingur átti enn eftir að klára. Hann fékk sex fugla á holunum átján en var óheppinn á nokkrum holum og fékk fjóra skolla.