Austurríski formúluökumaðurinn Alexander Wurz er í samningaviðræðum við Toyota um þessar mundir, en þeir hefja þátttöku í formúlunni árið 2002. Verið er að ræða um sama prófunarsæti og Toyota bauð Mika Salo, sem enn hefur ekki sagt af eða á með það.