Fyrstu verðlaun Formúlukeppninnar í ár verður ferð fyrir tvo með Samvinnuferðum-Landsýn á kappaksturinn í Indianapolis sem fer fram þann 24. september. Sá sem á mest inni í bankanum að lokinni keppninni í Monza á Ítalíu hlýtur vinninginn. Sá sem hlutskarpastur verður eftir allt tímabilið, sem lýkur í Malasíu 22. október, hlýtur glæsilegt úr, Tag Heuer Quartz Chronograph frá Leonard. Kassinn utan um úrið er áritaður af Mika Hakkinen, David Coulthard og Ron Dennis.
þetta er þess virði að reyna..