Hver er ykkar tilfinning fyrir því hverjir verða þriðja liðið þetta árið. Ég veðja auðvitað á Jordan, ég var að skoða heimasíðu Heinz-Harald Frentzen og maðurinn er bara mjög bjartsýnn, ég hef bara sjaldan heyrt annað eins. Bíllinn er víst frábær, vandamálin frá því í fyrra varðandi áreiðanleikann eru greinilega að mestu leyst. Bíllinn gekk alveg án nokkurra vandræða alla helgina. Ég er alveg viss um að hann hefði komist á verðlaunapall ef ekki hefði verið fyrir nuddið við Barrichello.
Heimasíða Frentzens er mjög góð, nánast allur textinn þarna er skrifaður af honum sjálfum og hann veitir verulega góða innsýn inn í þennan heim.
www.frentzen.de