De la Rosa var (eins og frægt er orðið :) rekinn frá Arrows liðinu aðeins mánuði fyrir fyrstu keppni ársins til að hleypa Bernoldi að. Þetta þýddi að de la Rosa vantaði lið til að keyra fyrir, og var lengi talið að hann endaði hjá Minardi liðinu, en hann endaði með að ganga til liðs við Prost sem reynsluökumaður. Síðan var það tilkynnt í dag að hann hefði svikist undan samningnum við Prost og væri nú reynsluökumaður fyrir Jagúar. Prost gáfu stuttu síðar út yfirlýsingu þess efnis að þeir ætluðu að fara í mál við Jagúar og de la Rosa.