Dale Earnhardt látinn. Dale Earnhardt, sjöfaldur Nascar Winston cup meistari og ein af skærustu stjörnum mótorsportsins á síðustu árum lést í gær, 18. janúar sökum meiðsla eftir árekstur á lokahring Daytona 500 kappakstursins. Áreksturinn var harður, og hann er talinn hafa látist samstundis. Hann var 49 ára að aldri.