David Coulthard hjá McLaren sló brautarmetið á Valencia brautinni á Spáni tvisvar: fyrst á mánudag og bætti svo eigið met á þriðjudag. Alexander Wurz, reynsluökumaður McLaren var sjálfur kominn nálægt gamla metinu fyrir helgi. Þrátt fyrir að nýji McLaren bíllinn sé greinilega mjög hraðskreiður, hafa McLarenmenn átt í vandræðum með endinguna á bílunum. Vélarbilanir í bílum Coulthards og Wurz urðu til þess að það þurfti að setja út rauð flögg fimm sinnum meðan á æfingum stóð á þriðjudag.