Prost kynnir nýja bílinn 28. febrúar. Prost hefur gefið út tilkynningu um að keppnisbíll liðsins fyrir árið 2001 verði kynntur 28. febrúar næstkomandi, aðeins fjórum dögum fyrir fyrstu keppni tímabilsins. Prost liðið, sem skoraði ekkert stig í keppni bílasmiða í fyrra virðast hafa lært af lexíunni því að ökumenn liðsins, Gaston Mazzacane og Jean Alesi, hafa báðir verið að gera mjög góða hluti á æfingum í nýja bílnum. Þeir hafa síendurtekið verið að keyra 1-2 sekúntum hraðar en lið eins og Benetton og Arrows á Estoril brautinni. Það vantar þó allan samanburð við önnur sterkari lið, þetta gæti þýtt að Arrows og Benetton séu að standa sig illa, en þó virðist sem Prost liðið sé að ná sér vel á strik og séu jafnvel komnir á svipað stig og Williams og Jordan.