Rubens Barichello vann sinn fyrsta Formúla1 sigur í dag. Hann rétt náði lágmarkstímanum í tímatökunni í gær og startaði 18.. Þegar hann sá Schumacher lenda í árakstri varð hann að taka til sinna ráða og það gerði hann og gott betur. Á blaðamannafundinum sagði hann að gærdagurinn hefði verið versti dagur ævi sinnar en dagurinn í dag sá besti. Barichello keppti fyrst í Formúla eitt árið 1993 svo þetta var sannarlega langþráður sigur.