Michael Schumacher vann í dag kanadíska kappaksturinn. Í öðru sæti var félagi hans, Rubens Barrichello. Fisichella var síðan í þriðja sæti og Hakkinen í því fjórða.
Þess ber að geta að þetta var í fyrsta sinn á þessu keppnistímabili sem sá sem er fyrstur í tímatökum vinnur keppnina.