Frétt af mbl.is
Benettonliðið er komið í æfingabúðir til Kanaríeyja þar sem koma á ökuþórum í sem besta líkamsþjálfun fyrir komandi keppnistímabil. Gaman verður að sjá til Jenson Button á næsta tímabili því hann var ráðinn aðeins fimm vikum áður en tímabilið hófst í fyrra og því ekki hægt að segja að hann hafi verið í nægilega góðri þjálfun. Fréttir frá Kanarí herma að hann eigi erfitt með að aðlaga sig að því mikla líkamsálagi sem keppni í Formúlu 1 er enda hafi hann verið óduglegur við að þjálfa sig fram að þessu.