McLaren er að þróa hjálm sem gerir bílstjóranum auðveldara að nálgast ýmsar upplýsingar. Þá þarf ökuþórinn ekki að finna þessar upplýsingar í útbúnaði á stýrinu heldur eru þær í augnsýn í hjálminum.
Það var Michael Schumacher sem á sínum tíma reið á vaðið með þessa tækni og lét byggja inn í hjálminn upplýsingar um snúningshraða mótorsins. Og nú þróar McLaren þessa tækni enn frekar fyrir sína menn.