Gamli refurinn Jean Alesi hefur víst áhuga á að keyra aftur fyrir Sauber liðið. Í byrjun núverandi keppnistímabils lofaði Alesi Prost að enda sinn Formúlu feril hjá Prost liðinu. En þar sem illa hefur gengið hjá þeim og vegna orðróms um sölu liðsins þá hefur hann hug á að keyra aftur með Sauber. Alesi er að velta fyrir sér hvað gera skal….eins og hætta í bransanum, halda ferlinum áfram í Bandaríkjunum þar sem öflug bandarísk CART lið hafa sýnt honum mikinn áhuga og BAR liðið hefur einnig verið í sambandi við hann út af næsta keppnistímabili Formúlunnar. En eftir frábæran árangur Oliver Panis í prufukeyrslum í seinustu viku þá er talið að BAR geti enn frekar hugsað sér þennan bráðsnjalla bílstjóra í cockpit Ricardo Zonta.