Vegna þess að miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Jos Verstappen og Pedro de la Rosa verði áfram hjá Arrows liðinu hafa þeir gefið út yfirlýsingu þess efnis að svo sé. Samkvæmt fréttum í spænskum blöðum ákvað de la Rosa að vera áfram hjá Arrows þrátt fyrir að þrjú önnur lið hafi reynt að fá hann til liðs við sig. Þó ekki sé komin út opinber yfirlýsing frá Arrows liðinu sjálfu þá segir de la Rosa að það sé engin spurning um hvort þeir verði áfram þar því þeir séu nú þegar byrjaðir að prófa nýja bílinn. Framkvæmdastjóri Arrows Raimon Durán staðfesti þetta einnig en sagði að það væri undir liðinu komið hvenær þeir tilkynntu það. Þetta virðist allt vera á huldu vegna þess að liðið er að gera nýja samninga við sponsora og það gæti tafið staðfestinguna á þessu.