Datt í hug að tilkynna komu Lockheed Constellation vélarinnar sem er búin að vera á leiðinni í langan tíma. Hún lagði af stað frá Goose Bay í Canada kl: 1145 Z og þeir ætla að vera í 06:30 á leiðinni.
Ættu þar af leiðandi að vera hérna um 18:15

Hún fer á Millitary helming vallarins til að byrja með en verður svo dregin til Suðurflugs á Mánudeginum þar sem hún verður tönkuð. Þeir halda svo áfram til Bretlands á þriðjudaginn. Þessi vél á að enda á safni í Hollandi.