eggertsae skrifaði:
Könnun þín: Hverjir vilja kosningu um stjórnendur hér? send á Flug var ekki samþykkt.

Þökkum viðleitnina.
hugi.is
- - - - - - - - - - - - -

Hvers vegna var hún ekki samþykkt??????????? Ertu að verða eins og grizzly, hafna því sem þer líkar ekki? :(

davidjons

——————————————–

Ég er ekki einu sinni viss hvort ég á að vera eyða orðum á þetta, en til að allt sé á hreinu, þá kemur það hér.

Það er búið að vera póstur í gangi hérna um þetta mál, og ég tel að hann hafi coverað þessa könnun. Mér finnst að þetta mál væri komið í góðan farveg, og tími til kominn að hætta að hjakkast í sama sporinu. Ég man ekki hverjir voru svarmöguleikarnir hjá þér, en ég man að það voru tvær þarna um þetta mál, þegar ég skoðaði kannanirnar sem höfðu safnast upp meðan enginn var stjórnandi. Önnur var að mig minnir já og nei, og hin var Hver eftirtalinna ásamt eggertsae og siquay ætti að vera stjórnandi. Ég held ég hafi hvoruga samþykkt.

Ég ætla ekki að svara fyrir grizzly, en ég eyði hiklaust því sem mér líkar ekki. Það þýðir ekki að ég eyði því sem ég er ósammála. Ég hef oft áður lýst því hvernig ég ber mig að ef ég þarf að eyða einhverju, og ég ráðlegg þér eindregið að skoða póstana hérna.

Ef þú heldur að með því að koma með einhver svona skot, þá verði allt samþykkt sem þú sendir inn, þá skjátlast þér hrapalega. En líka ef þú heldur að ég sé á leiðinni í eitthvað “eyða öllu frá davidjons”, þá skjátlast þér líka. Ég hef ekki tamið mér þau vinnubrögð að láta álit mitt á einstökum málefnum né einstaklingum, í þessu tilfelli þér, hafa áhrif á það sem ég samþykki, né heldur það sem ég eyði.