Ég var að pæla, er alltaf að pæla svo mikið. Hvernig findist ykkur ef það væri svona flugmannagagnagrunnur á www.caa.is (heimasíðu Flugmálastjórnar), þá gæti maður flett upp skírteinisnúmerinu og séð hvaða próf menn eru með (PPL, CPL, ATPL etc.), hvaða ratingar o.fl.

Ég er nú þegar búinn að skora á þá via e-mail (fms@caa.is) að taka þetta fyrir á næsta fundi og var reyndar í þessu að fá svar frá upplýsingafulltrúa FMS og fannst honum hugmyndin ágæt og ætlar að koma þessu á framfæri.

Ef einhverjir aðrir hafa áhuga á þessu, um að gera að senda bara mail á þá og segja þeim að *þú* styðjir tillöguna!

JMK
#4256