Þriðjudaginn 1.janúar 2002 var Icelandair VA breytt í nýstofanð Icelandair Virtual, í kjölfar þessara breytinga hafa verið gerðar margar breytingar á ýmsum sviðum félagsins. Ný heimasíða hefur verið opnuð í splunkunýju útliti og er nú mun auðveldara að vafra um vefinn en áður. Nýja veffang Icelandair Virtual er www.icelandair-virtual.com.
Einnig flaggar félagið nú nýju “logoi”.
Fyrir utan allar útlitsbreytingar þurfti að gera ýmsar aðrar breytingar til að halda félaginu við og má þar nefna að öllum flugmönnum félagsins var sagt upp en er þeim gefinn kostur á að endurumsækja og haldast allir skráðir flugtímar, stöður og áritanir flugvéla frá Icelandair VA.
Við viljum hvetja alla sem hafa áhuga á að verða flugmenn hjá Icelandair Virtual og kynnast nýrri hlið á fluginu að sækja um, mikil fjölgun hefur orðið á þessu áhugamáli síðustu mánuði og liggja vegir ekkert annað en upp á við.

Icelandair Virtual óskar öllum Gleðilegt nýtt ár og góðra “flugtíma” á komandi ári.