Kevin James Turner, 48 ára maður sem býr í Ástralíu,
var handtekinn fyrir að stela flugvél og brotlenda
hennar tvisvar sama kvöldið. Hann neitaði allri
sakargjöf þegar hann kom fyrir rétt.
Saksóknari vildi meina að Turner hefði stolið vélinni
af flugvelli nálægt heimili hans. Hann brotlenti
flugvélinni í fyrra skiptið þegar hann reyndi flugtak
og svo aftur eftir aðeins 2 kílómetra flugferð.
Drykkjufélagar Turners hjálpuðu honum að þjófstarta
vélinni en mál hans verður tekið fyrir þann 22. febrúar
á næsta ári.