Ég hef tekið eftir að það er orðnir þó nokkuð margir notendur sem senda sína eigin myndir hingað inn. Er einhver áhugi fyrir því að hafa litla ljósmyndakeppni?

Ef það er einhver áhugi þá var ég að hugsa um að við ákveðum eitthvað viðfangsefni tengt flugi og myndirnar eiga að vera teknar innan ákveðins tíma, t.d. á bilinu 15 - 25 des. Svo þegar allar myndirnar eru komnar þá samþykki ég þær allar í einu og set svo könnun inn sem við getum kosið hver hefur unnið.

Ég fékk þessa hugmynd auðvitað af ljósmyndaáhugamálinu. Mér finnst þetta góð hugmynd til þess að blása smá lífi í þetta áhugamál. Hvað finnst ykkur?
“Life is what happens to you while you're busy making other plans” - John Lennon