Ég er búinn að vera að skoða svolítið úrvalið á expansions og flugpinnum á netinu, og finnst það alveg sorglegt hvað það virðist ekki vera hægt að fá neitt hérna á Íslandi. Er einhver verslun hérna sem ég veit ekki um, sem býður upp á varning eða eru menn bara að panta á netinu?

Þetta byrjaði eiginlega allt á því að ég fór að skoða aðra pinna þar sem ég var að spá í að uppfæra gamla sidewinder pinnann minn og var einnig að leita af einhverju payware flugvélum.