Neineineinei, misskilið mjög.. Held þú þurfir bara að hafa stúdentsskírteini, annars veit ég um annan íslending sem kláraði hérna fyrir ekki svo löngu sem var ekki einu sinni með það.
Það eru 2x brautir sem þú getur farið venjulega með Oxford: Integrated brautin þar sem að þú borgar 67þúsund pund (8,5mills) sirka og bindur allt þitt nám við skólann og þá færðu PPL, hourbuilding, CPL'ið, IR og MCC allt innifalið. Þú þarft ekki að hafa einkaflugmanninn til að byrja á henni.
Til að komast á þessa braut þarftu að taka inntökupróf sem að er lúmskt erfitt og mæli ég með að læra fyrir það, það hjálpar líka að hafa klárað stúdentinn á náttufræðibraut.
Svo er líka Modular leiðin sem er fyrir þá sem hafa nóg af tímum til að byrja CPL'ið beint eftir ground school og þá sem að vilja vera aðeins frjálsari í sínum hlutum og ekki borga jafnmikinn pening og binda sig við skólann. Þar verðurðu að hafa PPL skírteinið áður en þú sækir um og í staðinn er ekkert inntökupróf. Ég held að flestir Íslendingar hafi farið þessa braut og eru þeir blómstrandi núna, ýmist vinnandi hjá Ryanair eða Easyjet ;)
Var víst íslendingur hérna sem að fór í Hraðbraut beint eftir grunnskóla og kláraði á tveimur árum, fór svo beint í Oxford og var kominn með vinnu hjá Ryanair aðeins 19 ára. Respect to the man in the icecream van þar.
Annars bara senda Oxford fólkinu mail ef það eru eitthverjar spurningar, yndislegt fólk þarna meira og minna. Fá svo fleiri íslendinga hingað, ég er að verða geðveikur! allir að klára og ég held að ég sé eini íslendingurinn eftir í ground school núna. :X