Jæja núna eru væntanlega allir byrjaðir að nota Flight Simulator 2002 á fullu og búnir að leggja gamla FS2000 upp á hillu. Ég er mjög hrifinn af FS2002 en er ekki alveg tilbúinn að kaupa mér hann strax vegna þess að það er ekki ennþá búið að samhæfa nokkur “aukaforrit” eins og 767 PIC og Greatest Airlines etc. og mér finnst ekki gaman að fljúga í honum nema það sé í alvöru 757/767 cockpitti (við erum ekki öll eins :)

Þannig að mig langar að kaupa FS2000 af einhverjum sem er tilbúinn að selja mér hann á skikalegu verði sem hægt væri að semja um. Ath. að ég er ekki að tala um að viðkomandi skrifi (kóperi) sína diska og selji mér það heldur er ég að tala um upprunalegu diskana.

Vinsamlegast hafið samband við mig í gegnum e-mail á jmk@mi.is

Ég endurtek jmk@mi.is

Takk fyrir