Diamond Twin Star DA-42 kynning á sunnudaginn Sunnudaginn 16. september klukkan 10:00 kynna Mentor Aviation og Diamond Aircraft Industries tveggja hreyfla vélina DA-42 Twin Star. Vélin er með Thielert diesel hreyflum og búin nýjustu tækni í flugmælitækjum (EFIS Garmin G1000). Kynningin fer fram í Fluggörðum við hús Félags Íslenskra Einkaflugmanna. Tímasetningin gæti þó dregist fram yfir hádegi ef veður setur strik í reikninginn varðandi ferjuflugið. Reiknað er með að vélin komi til Reykjavíkur annað kvöld á leið sinni vestur um haf. Flugkennarar og flugnemar eru sérstaklega velkomnir og boðið verður upp á prófunarflug með flugmanni Diamond. Frekari upplýsingar á www.diamond-air.at