Nú styttist í Múlakot um verslunarmannahelgina. Þrátt fyrir að um óskipulagt flugmót sé að ræða þá verður samt mikið um að vera, m.a. verður keppt um nýjan glæsilegan bikar í TM Lendingakeppni, svo verða leikir fyrir krakka auk þess sem rólur og vegasalt er komið á svæðið.

Nánari upplýsingar um aðflug er að finna á http://www.flugfrettir.is/index.php?option=com_content&task=view&id=141&Itemid=26 og heimasíðu FÍE www.vortex.is/aopa

Þeir sem ætla að skreppa í Eyjar frá Múlakoti verða að kalla á Bakka þegar komið er við Dímon (BIBA 118,6 Mhz), þetta er að beiðni turnsins í Eyjum.

Með Múlakots kveðju
Valu