Að gefnu tilefni vil ég taka fram að Geirfugl stendur ekki fyrir flughátíð á Hellu næstu helgi, eins og fram kemur í dagskrárlið á hugi.is/flug. Hátíðin á Hellu um næstu helgi er á vegum Flugmálafélags Íslands. Geirfugl, líkt og mörg önnur samtök flugáhugamanna, er aðili að FMÍ, en stendur ekki frekar fyrir þessari hátíð en hin aðildarfélögin.

Geirfugl verður hins vegar með flugvélar sínar á svæðinu og svo mun einnig vera um önnur aðildarfélög.

Það er vonandi að sem flestir flugáhugamenn láti sjá sig í góða veðrinu á Hellu um næstu helgi og skemmti sér vel saman þá daga sem hátíðin stendur.

Með kveðju
stefstef