Mér datt það í hug að henda inn einni grein á léttum nótum. Allir hér inni (nokkuð öruggt fyrir mig að alhæfa :) ) límdu saman módel þegar þeir voru litlir ekki satt? Hvert var nú uppáhalds módelið ykkar?

Mitt uppáhalds módel var annað módelið sem ég eignaðist, Douglas DC 3 Dakota sem ég fékk gefins þegar ég var 11 ára minnir mig. Ég var ekki mikið fyrir nákvæmni þegar ég fékk módelið en náði að tjasla því saman, sleppti að mála það og enda á því að leika mér með það og fljúga því um allt hús :) Ég átti þessa flugvél í rúm fjögur ár og endaði á því að sprengja það í loft upp á skrautlegan hátt með teipbombu.

-ifil bbúlgroz-
—–