Sæll tonismari,
Reglugerðinn sem fjallar um þetta mál heitir JAR-FCL 3. Hana geturðu skoðað á www.jaa.nl.
Án þess að ég muni þessar tölur nákvæmlega að þá minnir mig að þetta hafi verið á þá leið að þú máttir vera +/- 3 fyrir atvinnuflugmann og +/- 5 fyrir einkaflugmann. Reglurnar voru svo rímkaðar í mars uppí +/- 5 fyrir atvinnuflugmann og +/- 8 fyrir einkaflugmann. Það sem skiptir líka máli í þessu er að skírteini sem þú hefur unnið þér inn er ekki auðveldlega tekið af þér. Því gott að hafa það í huga að ef þú hefur áhyggjur af því að sjón þín sé að versna að taka það lækknisvottorð sem þú ætlar þér að fá, þegar þú er kominn með það og sjónin þín fer undir viðmiðunarmörk, innan vissra marka þó, að þá heldur þú vottorðinu þínu.
En allt þetta er sagt án ábyrgðar! Ef þú ert að byrja að læra eða ert að spá í því, mæli ég með því að þú hringir í trúnaðarlækni flugmálastjórnar og spurjir hann spjörunum úr. Hann heitir Þengill Oddsson (indælis maður og gott að tala við) og þú ættir að ná í hann í síma 569-4100.
Kveðja,
deTrix
p.s. ef um eitthvað vafaatriði er að ræða skaltu fá öll svör skrifleg með því að senda inn skriflegt erindi.