Jæja þá er flugskólinn búinn að auglýsa að það verður bóklegt einkaflugmans námskeið 9.janúar ef næg þáttaka næst. Ég fór að spá hvað er maður sirka lengi að taka allan einkaflugmanspakkan??
Ég er 15 ára verð 16 í febrúar. Spurningin er ætti maður að fara á þetta námskeið eða bíða fram á næsta haust, hvort borgar sig?? Ég er búinn að bíða og bíða eftir að geta byrjað að læra þetta og stefni á að taka allan pakkan og klára atvinnuflugmanninn og fara að vinna við þetta.